Fór í jarðaförina til Lilju í dag... og mikið rosalega var
athöfnin falleg! Friðrik Ómar söng og þetta var bara rosalega
fallegt hjá honum....
Gummi kom heim í nótt! Ótrúlega gott að fá hann heim! Hann
er núna að dútla upp í íbúð hjá okkur! En hann fer aftur á
miðvikudaginn
Það var bara fínt í lkapartýinu á laugardaginn... ég náði samt
að halda út lengur en til tíu! hehe... það var ágætt!!
En að sjálfsögðu er vorsýning myndlistarskólans núna um helgina
og ég vil endilega að þið mætið og kíkið á hvað ég ásamt fullt af
öðrum erum búin að vera að gera í vetur! Þetta verður mögnuð og
skemmtileg sýning! Er lau og sun frá 2-6 báða dagana! á ekki að
mæta?? 
rakst anars á þetta á netinu! Frekar fyndið!! heheheh ..
HM í sumar.. ( ekki okkar H&M stelpur) hehe
REGLURNAR:
1. Frá 9. júní til 9. júlí 2006 skaltu fylgjast vel með
fréttum hér á hmbolti.net svo þú vitir hvað er að gerast á
lokakeppninni í Þýskalandi. Þá getum við talað lítilega saman
á meðan á lokakeppninni stendur þar sem ég mun ekki ræða um neitt
annað en FÓTBOLTA.
2. Á meðan á lokakeppni HM stendur er sjónvarpið mitt –
alltaf og án allra undantekninga.
3. Það er allt í lagi ef þú þarft að komast framhjá
sjónlínu minni að sjónvarpinu svo lengi sem þú skríður eftir
gólfinu og truflar mig ekki. Ef þér skildi detta í hug að
standa nakin fyrir framan sjónvarpið farðu þá strax aftur í fötin
þar sem ég mun ekki hafa tíma til að fara með þig til læknis fáir
þú kvef.
4. Á meðan á leik stendur verð ég heyrnalaus, mállaus og
blindur gagnvart þér – nema ef til þess kemur að ég þurfi
nýjan bjór eða eitthvað að borða.
5. Það er góð hugmynd fyrir þig að hafa alltaf alla vega
tvær kippur af bjór vel kældar inni í ísskáp og nóg af
snakki. Ef þú hagar þér vel fyrir framan vini mína máttu
horfa á sjónvarpið frá klukkan 12 á miðnætti til 6 um morguninn ef
það eru ekki neinar endursýningar á þeim tíma.
6. Ef þú sérð að ég er reiður eða pirraður þegar liðið mitt
er að tapa viltu þá EKKI segja “þú jafnar þig – þetta er bara
leikur” eða “ekki hafa áhyggur – þeir vinna kannski næst.” Ef
þú segir þetta verð ég bara reiðari eða pirraðari. Mundu ávallt að
þú munt aldrei vita meira um fótbolta en ég og svona setningar
verða bara til þess að við skiljum fyrr.
7. Þú mátt horfa á EINN leik með mér og þú mátt tala við
mig í hálfleik, en bara þegar auglýsingarnar eru og bara ef staðan
er góð. Taktu líka eftir að ég sagði EINN leik, ekki reyna að
nota lokakeppni HM sem einhverja hörmulega tilraun til að “eyða
tíma saman”.
8. Endursýningar á mörkum eru mjög mikilvægar. Mér er alveg
sama hvort ég hafi séð markið áður eða ekki, ég vil sjá það oft og
mörgum sinnum í viðbót.
9. Segðu vinkonum þínum að eignast ekki börn á þessum tíma,
ekki halda nein barnaafmæli eða aðrar fáránlegar veislur vegna þess
að:
a) ég mun ekki mæta
b) ég mun ekki mæta og
c) ég mun ekki mæta
10. En athugaðu, ef vinur minn bíður mér í heimsókn til að
horfa á leik er ég rokinn.
11. Markaþættirnir í lok dagsins eru alveg jafn mikilvægir
og leikirnir sjálfir. Ekki detta í hug að láta út úr þér setningu
eins og “en þú hefur séð þetta áður” eða “af hverju skiptir þú ekki
um stöð?” Lestu aftur reglu númer 2.
12. Og að lokum, sparaðu þér setningu eins og “Guðs sé lof
af lokakeppni HM er bara á 4 ára fresti”. Ég heyri ekki þessa
setningu enda tekur Meistaradeildin, Enski boltinn, Ítalski
boltinn, Spænski boltinn og fleira við.
Takk fyrir að virða reglurnar.
Karlmenn um heim allan!
Unnið upp úr grein úr THE
SUN.